Heim
Tilbaka

Silhouette - fyrir cal. 22LR.

.22 Silhouette-skotfimi nýtur mikilla vinsælda víða erlendis. Þetta er skotgrein sem hinn almenni áhugamaður um skotfimi getur stundað með sínum "venjulega" .22LR riffli. Ekki er þörf á sérbúnum markriffli í þessa grein.

Silhouette-skotfimi er eftirlíking af skotkeppni sem stunduð var í Mexíkó fyrir aldamót. Í þá tíð skutu menn á lifandi dýr sem tjóðruð voru niður. Skyttan fékk í verðlaun þau dýr sem hann hitti, hvort sem þau voru lifandi eða dauð, svo framarlega að það blæddi úr þeim til að sanna að dýrið hafði verið hitt. Dýrin voru staðsett á mismunandi færum, allt að 500m. Algengt var að skotmenn, sem oftast voru fátækir bændur og veiðimenn, kepptust við að reyna að særa dýrin í stað þess að drepa þau, til að fá þau lifandi með sér heim og auka þannig við bústofn sinn. Að sjálfsögðu var þessi skotkeppni bönnuð þegar fram liðu stundir og henni síðar breytt í íþrótt þar sem menn skjóta á stálmyndir af dýrunum (Silhouette) í stað lifandi dýra. Silhouette fyrir cal .22 er eftirlíking af Silhouette-grein þar sem dýramyndirnar eru í fullri stærð og á samskonar færum og þær voru í gamla- daga, til að líkja sem mest eftir hinni fornu "íþrótt" þó svo dýrategundirnar sem notaðar eru hafi eitthvað breyst með tímanum. Þessar stóru Silhouettur eru staðsettar á 200m, 300m, 385m, og 500m. Til að skjóta þær á þessum löngu færum eru notaðir rifflar í mun stærri caliberum en hér er fjallað um, t.d. cal.308win. Eins og gefur að skilja er mun ódýrara að skjóta með cal. 22 en þessum stóru skotum, en það er ein af ástæðunum fyrir því að cal .22 Silhouette er eins vinsæl og raun ber vitni. Færin fyrir cal .22 Silhouette er stytt fimmfalt og myndirnar sömuleiðis minnkaðar í sama hlutfalli miðað við dýramyndirnar sem eru í fullri stærð.

Til að skjóta 22-Silhouette þarf ekki meira en cal .22LR riffil með kíki og pakka af skotum. Skotið er á fjórum færum, kjúklinga á 40 m, svín á 60 m, kalkúna á 77 m og hrúta á 100 m. Skotið er fimm skotum frá vinstri til hægri á einu færi í einu, fyrsta skoti á fyrstu Silhouettu öðru skoti á þá næstu, hvort sem viðkomandi hittir í fyrra skoti eða ekki, þangað til öllum fimm skotunum hefur verið skotið, þannig að aldrei er skotið nema einu skoti á hverja Silhouettu. Til að skora stig í Silhouette-skotfimi þarf einungis að fella Silhouettuna af stalli sínum.

Silhouette-Reglur sem skotið er eftir byggjast helst á skottíma, sem er 2.5 mín. á hver fimm skot auk 15sek. til að hlaða riffilinn, þyngd riffils, sem má mest vega 4.6 kg með öllu. Þá eru reglur um lögun riffils sem flestir rifflar falla undir nema sérútbúnir markrifflar, og síðan hvernig skotið er á dýrin eða í hvaða röð eins og áður segir. Silhouette er skotið úr standandi stöðu samkvæmt reglum, án stuðnings frá aukahlutum hverskonar, s.s ólum, sérstökum skotjökkum ofl. sem veitir auka stuðning við skyttuna. Í þessari grein skotfimi verður skotmaðurinn að glíma óstuddur við sína eigin hreyfingu, mismunandi færi, vind úr öllum áttum eins og oft á Íslandi, eða hreinlega rok og rigningu.

Rétt er að geta þess að einungis eru leyfðir cal. 22LR rifflar til Silhouette-æfinga en cal. 22 Magnum eru bannaðir.


Silhouette / málmmyndir: Alls eru fimm stk. af hverri tegund á hverju færi. kjúklingar eru á 40 m. Svín eru á 60 m. Kalkúnar eru á 77m. og Hrútar eru á 100 m.

Æfingar. Að æfa og keppa í Silhouette-skotfimi með cal.22LR er bæði krefjandi og góð aðferð til að ná árangri í skotfimi. Þetta er skotíþrótt fyrir konur jafnt sem karla og geta aðilar skipst á um að skjóta með sama rifflinum þegar tveir eða fleiri koma saman á æfingu.

Á Silhouettu-æfingum SR er æfingarstjóri sem leiðbeinir og aðstoðar byrjendur við undirstöðuatriðin, stilla kíkja og annað það sem viðkomandi kann að óska eftir. Allar nánari upplýsingar er að fá á æfingum. Æfingar eru haldnar reglulega og eru þær auglýstar í Skeytinu og á æfingarstað. Nú er bara að mæta á næstu æfingu og taka þátt og spreyta sig í þessu skemmtilega sporti.

Munið eftir heyrnahlífum og hlífðargleraugum!

Cal.22LR Silhouette-rifflar

Tveir cal.22LR rifflar af Brno gerð. Þessi "venjulegi" hér að ofan með 4X kíki, sem svo margir eiga heima í skáp. Skeftinu á rifflinum á neðri myndinni hefur verið breytt til að það henti betur til að skjóta með úr standandi stöðu. Hann er einnig með þyngra hlaupi og kíki sem stækkar 6.5-20X.

 

Þegar skotið er með cal .22LR riffli með kíki án markturna á Silhouettur.

Á myndunum hér að neðan má sjá hvernig þarf að miða með kíki þegar verið er að skjóta á silhouettur með cal.22LR. Hér er tekið dæmi um venjulegt cal .22LR skot, td. frá Lapua eða Eley, sem notuð eru til markskotfimi. Vegna hins bogadregna ferils kúlunnar eða hvernig hún fellur, er eingöngu hægt að stilla kíkirinn á eitt færi, þ.e.a.s. það er einungis hægt að miða beint á skotmarkið á einu færi, í þessu tilfelli á kalkúna á 77m. Ákoman (þar sem kúlurnar lenda) eru í miðjum kalkúnanum, eða nákvæmlega þar sem miðað er.

Þar sem hér er tekið dæmi um kíki sem ekki er útbúinn með markturnum, sem hægt er að stilla með inn á hvert færi fyrir sig, þarf að stilla kíkinn / riffilinn inn á eitt ákveðið færi og miða síðan yfir eða undir eftir atvikum eins og sýnt er á myndunum.

Rétt er að benda byrjendum á að nota ekki Hi-Power eða High Velocity .22LR skot þar sem þau eru ónákvæmari en skot sem ætluð eru til markskotfimi.

Þar sem kíkirinn er stilltur á 77m (kalkúni) er ákoman 5.5cm yfir á fyrsta færinu 40m (kjúklingur). Á næsta færi 60m (svín) er hún 4.0cm yfir, á þriðja færinu 77m (kalkúni) er ákoman eins og áður segir 0.0cm eða þar sem miðað er. Á síðasta færinu 100m (hrútur) er kúlan á hraðri niðurleið eða 11.5cm fyrir neðan. Athugið að þessar tölur eru einungis til viðmiðunar og verður hver og einn að prófa ákomuna úr sínum riffli, þar sem ákoman með sömu skotfærum getur verið mismunandi milli riffla.


Kjúklingur á 40m færi, ákoma er 5.5cm yfir


Svín á 60m færi, ákoma er 4.0cm yfir


Kalkúni á 77m færi, ákoma er 0.0cm.


Hrútur á 100m færi, ákoma er 11.5cm undir.

Athugið að myndirnar eru ekki í réttri stærð, en sýna í réttum hlutföllum hvar þarf að miða með kíkinum til að hitta silhouetturnar þegar hann er stilltur á 77m. Ef hinsvegar er notaður kíkir með mark-turnum sem hægt er að stilla með á hvert færi fyrir sig þarf ekki að miða undir eða yfir eins og hér er sýnt. Þá er kíkirinn stilltur á það færi sem verið er að skjóta á hverju sinni og miðað eins og gert er þegar verið er að skjóta kalkúna, miðað beint á skotmarkið.

 

 

Copyright © 2010 Guðmundur Kr. Gíslason   ............  
Síðast breytt: 
03 febrúar 2012            

Hamraborg 5 - 200 Kópavogi - (Iceland) Sími +354 544 8790 Fax +354 544 8795 Rafpóstur (email) isnes(hjá)isnes.is